Kennari með mörg járn í eldinum

Viðtal við Unni Maríu Sólmundardóttr, Breiðhylting, grunnskólakennara, vefstjóra og útgefanda, sjá www.kennarinn.is.  Unnur María er hálfur Norðfirðingur, ólst upp á Akranesi en hefur frá 18 ára aldri búið í Reykjavík, lengst af í Breiðholtinu þar sem hún býr núna ásamt fjölskyldu sinni.   Unnur María er sjúkraliði, smíða- og grunnskólakennari kennir yngsta stigi í Breiðholtsskóla auk þess að stunda nám í hagnýtri Margmiðlun við Borgarholtsskóla sem hún lýkur í vor.

Unnur María er hálfur Norðfirðingur, ólst upp á Akranesi en hefur frá 18 ára aldri búið í Reykjavík, lengst af í Breiðholtinu þar sem hún býr núna ásamt fjölskyldu sinni.   Unnur María er sjúkraliði, smíða- og grunnskólakennari kennir yngsta stigi í Breiðholtsskóla auk þess að stunda nám í hagnýtri Margmiðlun við Borgarholtsskóla sem hún lýkur í vor.

Landsbyggðastelpa í Breiðholtinu

Mér finnst ég alltaf vera landsbyggðarstelpa þó ég hafi lengst af búið í borginni, það er frábært að alast upp úti á landi, maður er svo frjáls, getur stússast í krabbaeldinu á Langasandi og leikið sér í fjöllunum fyrir Austan.  Eflaust hefur þessi reynslu haft sitt að segja með hversu vel mér líður hér í Breiðholtinu og það er gott að vera með börn í Breiðholti, það er svo stutt í náttúruna sem er hér allt í kringum okkur samanber útivistarparadísina Elliðárdalinn.logo kennari

Það er sérstök samsetning að vera sjúkraliði og kennara, hvernig kom það til?  Ég ætlaði mér frá 6 ára aldri að verða hjúkrunafræðingur og byrjaði á að fara í sjúkraliðanám.   Eftir að hafa unnið á sjúkrahúsum sá ég að það hentað mér ekki og ég ákvað því að fylgja æskuvinkonu minni sem þá var að hefja kennaranám.  Leiðin lá í verknámsgreinarnar þar sem ég er svo mikill föndrari en upphaflega ætlaði ég að fara í textílkennarann en  ákvað að taka frekar smíðakennarann þar sem ég vildi læra á þær vélar og tól sem notaðar eru í smíðunum.

En hvað heillar þig við kennarastarfið?  Það er bara svo margt, bæði fjölbreytt og fjölskylduvænt starf og manni gefst tækifæri til að fylgja börnunum sínum eftir í þeirra námi.  Ég byrjaði að kenna á miðstigi en hef síðustu ár kennt yngri börnum þ.e. 1-4 bekk og finn að það á  best við mig, kennslan er fjölbreytt og krakkarnir eru svo skapandi á þessum aldri.

Kennarar þurfa ekki alltaf að finna upp hjólið

Ég fór í námið í Borgarholtsskóla til að þróa áfram hugmyndir mínar um námsefnisgerð og miðlun en  Unnur sem hefur þegar gefið út 3 rafræn tímarit með námsefni og kennsluleiðbeiningum en í náminu lærum við að nota ýmis hönnunar og umbrotsforrit.  Hugmyndin byrjaði sem Facebookasíða fyrir 4 árum.  Lokaverkefnið mitt  í náminu er heimasíðu og gagnagrunn með kennsluefni og -leiðbeiningum á léninu www.kennarinn.is, síðan er í vinnuslu en verður opnuð um næstu mánaðarmót.

Markmiðið með síðunni og tímaritunum er að skapa vettvang fyrir kennara til að deila með sér kennsluefni og aðferðum þannig að allir séu ekki að finna upp hjólið.  Ég hef aðallega verið að vinna með eigið efni hingað til en er að vona að fleiri bætist í hóp höfunda segir Unnur María en hún sér fyrir sér að vefurinn verði nokkurskonar markaðs- og samskiptatorg fyrir kennara á öllum skólastigum í framtíðinni.forsida oktober 2014

Langamma lítur til með mér

En hvernig gengur að halda svo mörgum boltum á lofti í einu?   Það hefur gengið hingað til þó vissulega hefði ég viljað komast lengra með verkefnin mín og eyða meiri tíma með fjölskyldunni.  Það verður frábært að útskrifast í vor og eiga aftur tíma aflögu.

En hvert stefnir þú í framtíðinni, kennari, vefstjóri og útgefandi?   Mig langar að þróa hugmyndir mínar í námsefnisgerð lengra þó ég sé ekkert endilega að hætta sem kennari. Til að ramma þær inn stofanið ég útgáfufyrirtækið Kennarinn ehf í haust.  Eftir útskrift stefni ég að því að vinna meira í viðskiptahugmyndinni á bak við verkefnið og gera það sjálfbært með því  að finna leiðir til að skapa tekjur af vinnu minni í framtíðinni.

Í upphafi viðtalsins kom fram að langamma Unnar Maríu sem dó áður en hún fæddist hefur í gegnum tíðina minnt hana á að slaka á með því að gera vart við sig við ýmis tilefni á tímum þar sem verkefnin hafa e.t.v. verið of mörg og álagið of mikið.  Ekki urðu við þó varar við langömmu í viðtalinu sem þýðir væntanlega að hún er mjög sátt við þá stefnu sem Unnur María er að taka í lífinu.