26/08/2015
Fab Lab opnaði huga minn
Viðtal við Arnar Daða Þórisson 22 ára Breiðhylting sem kynntist Fab Lab í gegnum Menntun núna verkefnið 2014 og hefur verið fastagestur og leiðbeinandi þar síðan. Arnar Daði Þórisson er fæddur og uppalinn í Breiðholti, hann á þrjú systkin, kærustu og þriggja ára gamla dóttur: það var rosalega gaman að alast hér upp alltaf mikið í gangi, í dag er hverfið allt öðruvísi en fólk heldur, fyrir 10-15 árum var erfitt að skilja hjólið sitt eftir úti en það er hægt að gera það núna, allt orðið miklu rólegra, flottara og það er meira við að vera segir Arnar.