Um Hvunndagshetjur
Hugmyndin með síðunni Hvunndagshetjur er að birta fréttir um og viðtöl við hvunndagshetjur í lífinu. Markmiðið er að fjalla um og segja sögur fólksins sem er öllu að jöfnu ekki í fréttunum. Fólkinu sem er að sigrast á erfiðleikum í lífi sínu og fólkinu sem lífgar upp á tilveru okkar með glaðværð, umhyggju eða visku sinni.
Ritstjóri síðunnar er Stefanía G. Kristinsdóttir sem hefur starfað sem ritstjóri og ráðgjafi í eigin fyrirtæki Einurð ehf. um nokkra ára skeið.
Á síðunni verða upptökur, skrifuð viðtöl, myndbönd og ljósmyndir eftir því hvað hentar best því efni sem um er að ræða. Ekki verður opið fyrir athugasemdir eða spjall á vefnum en lesendur og áhorfendur eru hvattir til að senda inn fréttaskot og hugmyndir að viðmælendum á stefania@einurd.is eða heyra í mér í síma 891 6677. Einnig má setja inn hugmyndir á Facebook síðuna okkar.
Borgarblöð í samstarfi við Hvunndagshetjur
Viðtöl við Guðbjörgu, Unni Maríu og Sólborgu birtast í Breiðholtsblaðinu í apríl og maí. Markmiðið er að viðtölin okkar verði einnig birt í hverfis og svæðismiðlum tengdum viðmælendum okkar.